Eindagi millifærslna á makríl 15. janúar

Vakin er athygli á að 15. janúar 2017 er síðasti dagur þar sem heimilt er að flytja veiðihieimildir í makríl milli skipa.   Þegar rennt er augum yfir lista um veiðiheimildir og veiðar hjá færabátum á árinu 2016 kemur í ljós að nokkuð af heimildunum munu ekki nýtast á komandi ári ef ekkert verður að gert.  Á þetta bæði við almenna- og viðbótarúthlutun.   
LS hefur í bréfi til Sjávarútvegsráðuneytisins óskað eftir að heimild til færslu milli ára á viðbótakvóta verði hækkað úr 10% í 20% eins og gildir við almenna úthlutun.  Svar hefur ekki borist en verður sett hér inn í fréttina um leið og það berst.  Það er afar brýnt að erindið verði samþykkt þar sem óheimilt er að framselja þær heimildir.  
Á listanum sem hér er birtur er aflastaða á makríl hjá færabátum.  Dálkurinn lengst til hægri sýnir hversu mikið viðkomandi getur aukið heimildir sínar á yfirstandandi ári og dálkurinn við hlið hans sýnir hversu mörg tonn falla niður aðhafist viðkomandi ekkert.
Listi yfir aflastöðu:   Makríll – nýting veiðiheimilda.pdf
Eyðublað fyrir millifærslur.:   Flutningur_makrilheimilda_milli_skipa_2015-2.docx
Þrátt fyrir að þessi tilkynning sé birt hér er ekkert lát eða eftirgjöf hjá LS varðandi framtíðarsýn félagsins í nýtingu á makríl.
Krókaveiðar á makríl verði frjálsar og hlutdeild

færabáta í veiðunum verði að lágmarki 16%.