Eins og spegill – allir á sjó

Blíðviðri er á svæði A sem eigendur strandveiðibáta fagna sérstaklega.  Lokadagur er þar í dag og eru fjölmargir á sjó.  Skjáskotið hér sem tekið var af „marinetraffic kl 13:20 sýnir vel örtröðina á miðunum.
Screen Shot 2014-08-18 at 13.27.33.png

Eins og komið hefur fram bætti sjávarútvegsráðuneytið við þessum degi eftir að LS hafði óskað eftir því.   Ljóst má vera miðað við þann fjölda sem er á sjó á svæðinu að aflaviðmiðun verður uppurin þegar löndunartölur dagsins verða gerðar upp.
Á svæði C var bætt við tveimur dögum.  Þar er lokadagur á morgun, þriðjudaginn 19. ágúst.