Ekkert verkfall hjá áhöfnum LS báta

Eins og fram hefur komið hefst verkfall sjómanna 10. nóvember nk. náist ekki samningar fyrir þann tíma.  Til þessa hafa samningaviðræður milli Sjómannasambands Íslands (SSÍ) og Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) ekki borið árangur.  
Það skal sérstaklega tekið fram að fyrirhugað verkfall nær ekki til áhafna báta í eigu félagsmanna Landssambands smábátaeigenda.   Í gildi er samningur LS við sjómannasamtökin (SSÍ, FFSÍ og VM).
P1090170.jpg
Samningurinn var undirritaður 29. ágúst 2012 og gilti til 31. janúar 2014, með framlengingarákvæði þar til nýr samningur hefur verið gerður.  Viðræður hafa staðið yfir undanfarin misseri.  Gangur viðræðna hefur verið góður á síðustu vikum og fjölmörg atriði samningsins rædd.  
Í skýrslu framkvæmdastjóra LS er hann flutti á aðalfundi félagsins 13. október sl. sagði hann eftirfarandi um viðræðurnar:
„En víkjum þá að kjaraviðræðunum.  Aðstæður kölluðu eftir tillögum frá LS.  Að lokinni strangri yfirlegu var ákveðið að koma til móts við sjómannasamtökin um kröfu þeirra að allur fiskur fari á markað með eftirfarandi:

Við uppgjör til sjómanna skal miða við 95% af
fiskmarkaðsverði á því svæði sem landað er.

LS treysti sér ekki til að koma með þessa kröfu nema að fá leiðréttingu ákveðinna atriða á móti.  Staða viðræðnanna er að samningsaðilar eru að skoða útspil LS.  Segja má að verði hún samþykkt kemst betra skikk á markaðinn, samkeppnisstaða jafnast og laun til sjómanna hækka til lengri tíma.
Nái aðilar saman á næstunni verður samningurinn kynntur í svæðisfélögunum og greidd um hann atkvæði.