Í Fiskifréttum 25. janúar 2018 er viðtal við Axel Helgason formann LS. Yfirskrift viðtalsins er skírskotun til baráttu LS fyrir lækkun veiðigjalda hjá smábátaútgerðinni:
„Ekki flókið að þrepaskipta
Í viðtalinu kemur Axel víða við. Hann ræðir hina ýmsu fleti á álagningu veiðigjalds, útfrá; byggðasjónarmiði, forskoti stórútgerðarinnar, launakostnaði og kostnaði við lántöku.
Þá kemur hann inn á fækkun smábáta, umræðu um netaveiðar krókaaflamarksbáta, grásleppuveiðar og afturköllun MSC vottunar þar sem hann gagnrýnir vinnubrögð Hafrannsóknastofnunar.
„Ég vil að Hafró biðji alla hlutaðeigandi afsökunar á að hafa eytt tíma þeirra í aðvinna út frá handónýtum gögnum. Útselurinn er reiknaður út frá fjórum veiðiferðumsem skiluðu 43 útselum fyrir Vesturlandi og uppreikningur Hafró skilar 2.870 selum.Það voru 16 teistur í sex veiðiferðum fyrir Vesturlandi sem reiknast upp í 998teistur.