Hafrannsóknastofnun hefur kynnt ráðgjöf sína um leyfilegan heildarafla helstu nytjategunda á næsta fiskveiðiári.
Þar kom fram að stofnunin leggur til að þorskafli verði minnkaður um 13 527 tonn, sem svarar til 6,1% skerðingar. Er það þriðja árið í röð sem stofnunin leggur til skerðingu, en samanlagt nemur hún 63 þúsund tonnum á tímabilinu, rúm 23%.
Skerðingar undanfarinna ára eru ekki í neinu samræmi við upplifun sjómanna um hvernig gengur að veiða. T.d. hefur meðalafli í róðri hjá strandveiðibátum farið vaxandi á undanförnum árum og ekkert lát á því í ár.
Hér má sjá ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar ásamt ráðgjöfinni á síðasta ári. Tekið skal fram að ráðgjöfin miðast við fiskveiðiár sem hefst 1. september.
Ráðlagður heildarafli Hafrannsóknastofnunar Tegundir 2022 2021 Breyting Þorskur 208.846 222.373 -6,1% Ýsa 62.219 50.429 23% Ufsi 71.300 77.561 -8% Gullkarfi 25.545 31.855 -20% Síld 66.195 72.239 -8% Grálúða 26.710 26.650 0% Djúpkarfi 6.336 7.926 -20% Litli karfi 585 609 -4% Steinbítur 8.107 8.722 -7% Hlýri 334 377 -11% Blálanga 259 334 -22% Langa 6.098 4.735 29% Keila 4.464 2.172 106% Lýsa 1.091 1.137 -4% Skötuselur 258 402 -36% Gulllax 11.520 9.244 25% Tindaskata 1.105 9.244 -88% Skarkoli 7.663 7.805 -2% Sandkoli 301 313 -4% Langlúra 1.230 1.025 20% Þykkvalúra 1.137 1.288 -12% Stórkjafta 132 217 -39% Hörpudiskur 93 93 0% Beitukóngur 264 264 0% Sæbjúga 2.307 2.307 0% Ígulker 196 196 0%