Enn fjölgar á grásleppunni


Fara
þarf mörg ár aftur til að finna fleiri báta sem stundað hafa grásleppuveiðar og
á yfirstandandi vertíð.  Eftir
metvertíðina í fyrra var búist við góðri þátttöku nú.  Það hefur gengið eftir og vel það, útgefin
leyfi eru komin í 357 sem eru tólf fleiri en á síðustu vertíð.

 

Í
samtölum við sjómenn hefur eitthvað lifnað yfir veiðinni nú á síðustu dögum
eftir afar dapurt gengi á síðustu vikum. 
Heildarveiðin nú svarar til 9.500 tunna af söltuðum hrognum, sem er
rúmum 40% minna en á sama tíma í fyrra.  
Raun minnkun er hins vegar 31%, 0,59 tunnar á hvern nýttan dag í ár á
móti 0,86 tunnum á vertíðinni 2010.