Er leiguverð að gefa eftir?

Á fyrstu tveimur heilu vikum nýbyrjaðs árs voru verðlögð viðskipti með alls 212 tonn af ýsu í krókaaflamarkskerfinu.  Fyrir það greiddu útgerðirnar tæpar 60 milljónir.
Í vikunni 4.1. – 10.1. nam tilfærslan 73,5 tonnum og var meðalverðið 308 kr fyrir hvert kíló.  Í nýliðinni viku 11.1. – 17.1. voru viðskiptin öllu meiri eða 139 tonn þar sem meðalverðið var 265 krónur.