LS og Matís hafa tekið höndum saman undir orðunum „fallegur fiskur.
Facebook síða hefur verið stofnuð þar sem sjómenn sýna í máli og myndum hvað þarf til svo 5***** fiski sé landað.
Sýnum það besta
Markmið verkefnisins er að auka vitund um mikilvægi góðrar aflameðferðar og hversu miklu máli það skiptir að stunda vönduð vinnubrögð. Sýna almenningi frá lífinu á sjónum, veiðum, aflameðferð, löndun svo eitthvað sé nefnt.
Verðlaun í boði
Í lok hvers mánaðar, maí, júní, júlí og ágúst verður einn sjómaður valinn sem þykir hafa skilað besta og jákvæðasta efninu. Eingöngu verður lagt mat á myndirnar og textann og mun það vera í höndum Matís og LS að velja úr aðsendum og birtum myndum.
Fangið augnablikið og deilið
Myndir eða stutt myndbönd mega vera af nánast hverju sem er varðandi sjómennsku, veiðar og aflameðferð. Við viljum þó fyrst og fremst sjá myndir sem fanga jákvæða mynd aflameðferðar, hvað það er sem gerir fiskinn þinn að ***** fiski og með hvaða hætti þú getur sýnt það í máli og myndum.
Nánari leiðbeiningar til þátttöku:
Facebook
1. Farðu á síðuna www.facebook.com/fallegurfiskur eða finndu síðuna í Facebook símaappi undir Fallegur fiskur og smelltu á „Like hnappinn.
2. Taktu mynd sem varpar ljósi á góða meðhöndlun afla/hráefnis sem gerir það að verkum að fyrsta flokks afli berist að landi.
3. Settu myndina á vegginn hjá www.facebook.com/fallegurfiskur og skrifaðu lýsandi texta um myndina.
4. Smelltu á „Share hnappinn eða þann hnapp sem deilir myndinni og textanum á Facebook.
Instagram
1. Farðu á síðuna www.instagram.com/fallegurfiskur/ eða finndu síðuna í Instagram símaappi undir Fallegur fiskur og smelltu á „Follow hnappinn.
2. Taktu mynd sem varpar ljósi á góða meðhöndlun afla/hráefnis sem gerir það að verkum að fyrsta flokks afli berist að landi.
3. Settu myndina með lýsandi texta á Instagram vegginn þinn en gerðu auk þess tvennt:
a. „Hash-taggaðu / notaðu myllumerkið (#) á myndina/færsluna með #fallegurfiskur ogb. Settu @fallegurfiskur í textann eða „Taggaðu fallegurfiskur í „Tag people valmöguleikanum.
4. Smelltu á „Share hnappinn eða þann hnapp sem deilir myndinni og textanum á Instagram.
Twitter
1. Farðu á síðuna https://twitter.com/fallegurfiskurhttps://twitter.com/fallegurfiskur eða finndu síðuna í Twitter símaappi undir Fallegur fiskur og smelltu á „Follow hnappinn.
2. Taktu mynd sem varpar ljósi á góða meðhöndlun afla/hráefnis sem gerir það að verkum að fyrsta flokks afli berist að landi.
3. Settu myndina með lýsandi texta á Twitter vegginn þinn en gerðu auk þess tvennt:
a. „Hash-taggaðu / notaðu myllumerkið (#) á myndina/færsluna með #fallegurfiskur ogb. Settu @fallegurfiskur í textann eða „Taggaðu fallegurfiskur í „Who‘s in this photo valmöguleikanum.
4. Smelltu á „Tweet hnappinn eða þann hnapp sem deilir myndinni og textanum á Twitter.
Gangi ykkur vel