Ferskur þorskur 25% aukning

Ferskur þorskur í útflutningi hefur aukist um rúm 25% á tveimur árum.  Þetta kemur fram við skoðun á tölum fyrir fyrstu 10 mánuði ársins í samanburði við sama tímabil árið 2014. Útflutningurinn dreifist á 27 lönd í ár sem er tíu löndum fleira en selt var til árið 2014.   Fjórar þjóðir bera uppi 90% viðskiptanna:  Frakkland, Bandaríkin, Bretland og Belgía.  Magn til þessara landa hefur tekið nokkrum breytingum á þessum tveimur árum.  
Aukning hefur orðið á viðskiptum við Frakkland og Bandaríkin, en hlutdeild Breta og Belga hefur dregist saman.   Hlutur Frakka farið úr 38% í 49% og Bandaríkjanna úr 14% í 17%.   Bretland hefur hins vegar fallið úr því að kaupa héðan fimmtung alls fersks þorsks í 14% og samdráttur til Belgíu er úr 17% í 10%. (sjá mynd)
Screen Shot 2016-12-20 at 22.57.07.png
Screen Shot 2016-12-20 at 22.57.28.png
Aukið magn hefur hækkað útflutningsverðmæti á ferskum þorski um 34%.  Hækkun í krónum á hvert útflutt kíló 6,7%.  Þetta er einkar ánægjulegt þegar litið er á gengi gjaldmiðla þessara landa mánudagana 19. desember sl. og 16. desember 2014.   
                  Gengi í desember
         16.2014 19.2016
EUR: 153,82  118,67
USD: 123,05      113,70
GBP: 193,19  141,61
Screen Shot 2016-12-20 at 22.57.40.png



Unnið upp úr gögnum 
frá Hagstofu