Ferskur þorskur – vantar 2,1 milljarða

Áhrifa verkfallsins eru nú óðum að koma í ljós.  Engum blöðum er um það að fletta að milljarðar hafa tapast í útflutningsverðmætum.  Við skoðun talna fyrir nýliðinn janúar er ljóst að útflutningsverðmæti í okkar verðmætustu afurð – ferskum þorski – var aðeins 30% af því sem það var á sama tíma í fyrra.  Í janúar sl. skilaði ferskur þorskur 1,3 milljarði en 3,4 milljörðum á sama tíma í fyrra.  Magnið nú var aðeins 38% af því sem það var í fyrra.
Í tölum Hagstofunnar sem upplýsingarnar eru unnar upp úr, er ferskum þorski skipt í fjóra flokka.  Nú í janúar var vægi hvers í magni þessi:
      • roðflett heil flök 48%
      • roðflett flök í bitum 38%
      • heil flök með roði  9%
      • óroðflett flök  4%
Roðflett flök í bitum skilaði mestum verðmætum um 600 milljónum.
Þrjá þjóðir keyptu sinn hvern fjórðunginn af ferskum þorski héðan – Bandaríkin, Belgía og Frakkland.