Vel fiskaðist á strandveiðum í gær. Dagurinn skilaði 384 tonnum af þorski. Hér má sjá þorskafla á strandveiðum fyrir hvern dag.
Eftir slök verð á þorski í síðustu viku er byrjun þessarar nokkuð viðunandi. Grafið sýnir meðalverð á óslægðum þorski (handfæri) sem seldur var á strandveiðidögum á fiskmörkuðum.