Á yfirstandandi grásleppuvertíð hafa eftirlitsmenn Fiskistofu róið með bátum víðsvegar á landinu. Almennt hefur ekki þurft að gera neinar athugasemdir við veiðarnar. Grásleppuveiðimenn virða netatakmarkanir, reglur um umgengni aflans og aðra þætti sem kveðið er á um í reglugerð.
Að gefnu tilefni hefur Fiskistofa óskað eftir að komið sé á framfæri á þessum vettvangi skilaboðum um að menn komi með allan afla að landi. Grunsemdir eru um að það sé ekki gert í öllum tilvikum, þar sem fram hefur komið óeðlilega mikill munur á meðafla báta þar sem veiðieftirlitsmaður er um borð og annarra sem róa á sömu veiðislóð.