Fiskistofa kallar eftir netföngum

Frá og með 1. janúar 2021 skal Fiskistofa tilkynna útgerð og skipstjóra með tölvupósti hafi viðkomandi skip veitt umfram aflaheimildir.  Jafnframt að fram komi að skipið verði svipt leyfi til veiða í atvinnuskyni frá og með fjórða virka degi hafi fullnægjandi aflaheimildir ekki verið fluttar til skipsins innan þess tíma.
Í tilkynningu frá Fiskistofu eru útgerðir hvattar til að tilkynna um netfang sem tilkynningar stofnunarinnar um umframafla eiga að berast á.  Fylla skal út eyðublað og senda það undirritað á fiskistofa@fiskistofa.is