Fiskur til vinnslu erlendis

Umræða um útflutning á ferskum heilum fiski til vinnslu erlendis hefur vart farið fram hjá þeim sem fylgjast með málefnum sjávarútvegsins.  Skoðun talna síðastliðins árs og 2019 á fimm tegundum; þorski, ýsu, ufsa, karfa og steinbít sýnir magnaukningu í þremur þeirra en í ýsu varð verulegur samdráttur og óverulegur í karfa.  Langmest var flutt út af þorski, en mest var aukning í ferskum heilum steinbít.  

Magn

2020

2019

Breyting

Þorskur

16.219 Tonn

9.212 Tonn

76%

Ýsa

6.573 Tonn

8.477 Tonn

-22%

Ufsi

7.984 Tonn

5.816 Tonn

37%

Karfi

13.776 Tonn

14.201 Tonn

-3%

Steinbítur

5.607 Tonn

2.722 Tonn

106%

 

50.158 Tonn

40.430 Tonn

24%

Útflutningsverðmæti þessa afla nam 17 milljörðum á árinu 2020 þar af þorskur 7,5 milljarðar.  Á árinu 2019 voru sambærilegar tölur 11,9 milljarðar og 4 milljarðar. 
Tölur unnar upp úr gögnum 
frá Hagstofu Íslands