LS hefur skoðað fiskverð og gengi í janúar og febrúar í ár og borið saman við sama tímabil í fyrra.
Meðaltalskaupgengi evrunnar í nýliðnum janúar og febrúar er 15,4% lægra en á sama tíma í fyrra. Með þá erfiðleika sem því fylgja er ánægjulegt að sjá að náðst hefur hækkun á óslægðum þorski og ýsu miðað við evru, dollar og pund.
Þegar litið er á verð þessara tegunda á mörkuðum í janúar í ár og í fyrra varð mest hækkun í GBP 34% í þorski og 45% í ýsu. Blákaldur veruleikinn blasir síðan við í febrúar, en þá er hækkunin á milli ára aðeins 19% í þorski og 18% í ýsu. Lækkun GPB á þessum tímabilum var hins vegar rúm 24%.
Í janúar sl. var þorskverð á mörkuðum 4 kr hærra en í sama mánuði 2016. Í nýliðnum febrúar hafði hins vegar sigið á ógæfuhliðina þar sem kílóverð var þá 28 kr lægra en í fyrra. Á þessu er ljóst að hækkun sem náðst hefur er ekki nægjanleg til að vega upp á móti styrkingu krónunnar.
Vakin er athygli á verðsveiflum á mörkuðum í upphafi þessa árs til samanburðar í fyrra.