Smábátaeigendur eru þessa dagana rasandi yfir lágu fiskverði. Í dag 10. maí var meðalverð á mörkuðum fyrir óslægðan þorsk 192 kr/kg. Á bakvið þau viðskipti liggja 77 tonn, þar af 40 tonn veitt á handfæri. Sama dag í fyrra voru sambærilegar tölur: 236 kr/kg, 264 tonn og 173 tonn.
Taka má undir orð Ólafs Hallgrímssonar formanns Félags smábátaeigenda á Austurlandi og stjórnarmanns í LS, „fiskverðið nú er ígildi hamfara. Hvað er eiginlega að? spyr Ólafur.
Taflan sem hér fylgir sýnir meðalverð á óslægðum þorski sl. 6 ár, fyrstu 10 dagana í maí. Athygli vekur að kílóverðið nú er 101 kr lægra en það var 2012. Það þarf því að veiða 15,3 tonn í dag til að fá sama aflaverðmæti og 10 tonn gáfu fyrir sex árum.
Nánar verður fjallað um fiskverðið á næstu dögum.