Flestir opnir bátar skráðir á Vestfjörðum


Í
hagtíðindum Hagstofu Íslands sem út komu 25. febrúar sl. var fjallað um
fiskiskipastólinn í árslok 2010.  Þar er
yfirlit um þróun flotans undanfarin ár, fjölda skipa, stærð þeirra, afl
aðalvéla og skiptingu eftir landssvæðum.


Meðal
þess sem fram kemur er að fiskiskipum á skrá Siglingastofnunar fjölgaði um 43 á
árinu og er öll fjölgunin í flokki opinna báta. 
Þeim fjölgaði um 51 og eru nú 807 talsins.  Vélskipum fækkaði um 7 og togurum um
einn.  Alls voru fiskiskip í árslok 2010
1.625.

 

Flestir
opnir bátar eru skráðir með heimahöfn á Vestfjörðum eða tæpur fjórðungur – 192
talsins.   Samanlagður fjöldi fiskiskipa
minni en 25 tonn er 1.345 sem 83% heildafjöldans.  Stærð þessa flokks í brúttótonnum er hins
vegar 9.514 tonn sem jafngildir 6,2% af stærð heildarflotans.  Þegar litið er til vélastærðar er heildarafl
báta minni en 25 brt 172.659 kWött eða 37% af heildarvélarafli flotans.

 

Sjá
nánar