Flutningur aflaheimilda

Vakin er athygli á að frestur til að flytja króka- og aflamark á milli fiskiskipa er til miðnættist 15. september nk.  Umsóknir um staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflamarks og krókaaflamarks á fiskveiðiárinu 2011/2012 þarf því að hafa borist stofunni fyrir miðnætti þann 15. september nk.
Skötuselur milli ára

10. ágúst sl. gaf Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið út reglugerð sem heimilar að flytja 15% af keyptu aflamarki í skötusel frá yfirstandandi fiskveiðiári yfir á næsta fiskveiðiár.