Landssamband smábátaeigenda Hverfisgötu 105 101 Reykjavík Sími: 552 7922 ls@smabatar.is
Fönix tyllir sér á toppinn
Fönix BA er alveg við það að rjúfa 60 tonna aflamúrinn á grásleppuvertíðinni. Að lokinni 10. löndum þann 8. maí var aflinn kominn í 59 tonn og 487 kg.
Að sögn Hafþórs Jónssonar eiganda og skipstjóra Fönix man hann varla eftir öðru eins moki og á þessari vertíð. Hafþór er þó enginn nýgræðingur í faginu, hefur varla misst úr vertíð frá því hann hóf eigin útgerð 1993. Stærsti róðurinn það sem af er var 27. apríl þegar hann landaði 10,4 tonnum.
Grásleppuvertíðin hófst 20. mars. Taflan sem hér fylgir sýnir stöðu veiðanna að loknum 50 dögum.
50 dagar liðnir frá upphafi vertíðar [20. mars – 8. maí]