Stjórn Fonts hefur sent frá sér eftirfarandi áskorun til stjórnvalda:
Áskorun frá Smábátafélaginu Fonti
(Kópasker – Vopnafjörður)
Til: Forsætisráðherra, sjávarútvegsráðherra og Atvinnuveganefndar Alþingis
Á fundi stjórnar Smábátafélagsins Fonts þann 30. apríl 2016 var samþykkt að beina eftirfarandi áskorun til stjórnvalda:
Stjórn Fonts mótmælir harðlega ákvörðun sjávarútvegsráðherra um strandveiðarer snýr að skiptingu veiðiheimilda milli svæða. Þess er krafist að sami hátturverði hafður á og áður að aukningu verði úthlutað í þeim hlutföllum semverið hefur milli svæðanna. Það eru því veruleg vonbrigði að ákveðið hafiverið að skerða svæði D um 200 tonn. Stjórn Fonts skorar á sjávarútvegsráðherra að draga ákvörðun sína til baka.Stjórn Fonts hvetur sjávarútvegsráðherra að ef til þess kemur að eitthvertveiðisvæðanna nái ekki viðmiðun sinni að þá verði dögum fjölgað á öðrumsvæðum.
Þórshöfn 30.4.2016
Stjórn Smábátafélagsins Fonts,
Oddur Vilhelm Jóhannsson, formaður Vopnafirði
Ragnar Jóhannsson Raufarhöfn
Einar Sigurðsson Raufarhöfn
Halldór Stefánsson Þórshöfn
Jóna Fríða Kristjánsdóttir Vopnafirði