Forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína í gær. Í ræðunni staðfesti hann að lög um veiðigjöld verði endurskoðuð:
„Unnið verður að því að endurskoða lög um veiðigjald þannig að almennt veiðigjald endurspegli afkomu útgerðarinnar í heild, en sérstakt gjald taki mið af afkomu einstakra fyrirtækja og fisktegunda, sagði forsætisráðherra.
Samningsbundin réttindi taki við af varanlegri úthlutun
Í umfjöllun sinni sjávarútveginn almennt sagði forsætisráðherra:
„Almenn sátt ríkir um að sjávarauðlindin er sameign allrar þjóðarinnar. Um nýtingu auðlindarinnar þarf einnig að ríkja víðtæk sátt. Því verður unnið áfram á grunni sáttanefndarinnar að því að samningsbundin réttindi um nýtingu aflaheimilda taki við af varanlegri úthlutun.Eðlilegt er að sjávarútvegurinn leggi sitt af mörkum til samfélagsins í formi skatta og gjalda í skiptum fyrir nýtingarréttinn, sem orðinn er verðmætur vegna þess að íslenska fiskveiðistjórnarkerfið hefur gert hann verðmætan.Íslenskur sjávarútvegur er í senn sjálfbær og hagkvæmur en hann keppir við sjávarútveg í löndum sem stunda ríkisstyrkta ofveiði, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.