Framboð til formanns LS

 
 
Tveir hafa tilkynnt framboð til formanns LS.  Þeir eru Þorvaldur Garðarsson og Halldór Ármannsson.
 
 
Þorvaldur Garðarsson

Þorvaldur er formaður Árborgar – félags smábátaeigenda á Suðurlandi.  
 
Þorvaldur var varaformaður LS 2004 – 2007, situr í framkvæmdaráði LS og hefur verið í stjórn landssambandsins frá 1995.
 
Þorvaldur gerir út og er skipstjóri á krókaaflamarksbátnum Sæunni Sæmundsdóttur ÁR-60.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Halldór Ármannsson
Halldór er formaður Reykjaness – félags smábátaeigenda á Suðurnesjum.  
 
Halldór er varaformaður LS, situr í framkvæmdaráði LS og hefur verið í stjórn landssambandsins frá 2006.
 
Halldór gerir út og er skipstjóri á krókaaflamarksbátunum Guðrúnu Petrínu GK-107 og Stellu GK-23.