Fyrr í dag kynnti Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra fyrir LS frumvarp um fiskveiðistjórn. Um er að ræða tvö frumvörp annars vegar um fiskveiðistjórn og hins vegar um veiðigjöld.
Á fundinum var látin í té kynning á helstu atriðum frumvarpsins sem hér má sjá utan þess myndefnis sem í kynningunni var. Við kynninguna hefur hins vegar verið bætt við fjórum skýringartextum.
Frumvörpin verða birt hér á síðunni um leið og þau berast.