Í kjölfar fundar LS og sjávarútvegsráðherra um ýsuvandræði krókaaflamarksbáta óskaði Hafrannsóknastofnun eftir fundi með forystu LS. Beiðni um fundinn kom frá ráðherra og verður hann haldinn nk. miðvikudag 5. febrúar.
Á fundinum mun LS gera grein fyrir kröfu sinni að ýsukvótinn verði tafarlaust aukinn um 5.000 tonn og knýja á um svör hvort stofnunin muni endurskoða ráðgjöf um heildarafla í ýsu.
Frá því LS fór af stað með kröfu sína hafa félagsmenn verið duglegir að hafa samband við skrifstofuna og greina frá ástandinu á miðunum. Dæmi þar um er Georg Arnarson á Blíðu VE. Georg lagði nokkrar línur á ýsuslóð við Eyjar, ekki var að sökum að spyrja – yfir 300 kg að meðaltali á balann. Aðspurður um stærð ýsunnar sagði Georg hana vera blandaða – allar stærðir.
Þá hafa fréttir borist af togslóð hér vestan við landið þar sem yfirleitt er þorskur en nú flæðir ýsa yfir allt svæðið.