Gallup er rétt í þessu að hefja skoðanakönnun meðal allra grásleppurétthafa um fyrirkomulag veiðistjórnunar. Leyfishafar mega því eiga von á símtali frá Gallup á næstu dögum.
Það er LS sem gengst fyrir skoðanakönnuninni og samdi við Gallup um framkvæmd hennar. LS leggur áherslu á mikilvægi þess að þátttakendur svari könnuninni.
Fulltrúi frá Gallup mun kynna niðurstöður úr skoðanakönnunni á síðari degi aðalfundar LS.