Gildi-lífeyrissjóður lækkar vexti

Á fundi stjórnar Gildis-lífeyrissjóðs, 12 desember sl., var ákveðið að lækka vexti af sjóðfélagalánum.   Lækkunin tekur gildi frá og með deginum í dag 13. desember.
Fastir vextir verða 3,80%, en voru 4,05%
Breytilegir vextir verða 3,10% en voru 3,45%
Samkvæmt lánareglum sjóðsins eru lán verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs.
  • Lánstími er 5 – 40 ár að vali lántaka.
  • Hámarkslán er 20 milljónir og lágmark 500 þúsund.
  • Aðeins er lánað gegn fasteignaveði í íbúðarhúsnæði lántaka.