Grásleppuvertíðin hefur farið vel af stað. Veiði á hvern báta er helmingi meiri en á sama tíma í fyrra og afli hverrar veiðiferðar einnig nokkuð betri.
Það veldur hins vegar miklum vonbrigðum hversu fækkað hefur bátum sem stunda veiðarnar, 38% færri nú á veiðum en á sama tíma í fyrra aðeins 67 bátar búnir að leggja en 103 í fyrra.
Margar ástæður liggja að baki fækkuninni. Flestir segja allan kostnað við veiðarnar hafa stóraukist á undanförnum árum og hæpið að verð sem nú er í boði skili hagnaði af veiðunum. Önnur skýring er óvenjuslæmt veður, sem nánast hefur staðið linnulaust frá því lok nóvember. Þriðja skýringin sem menn nefna er Covid-19. Samskipti við veiðarnar verða ekki umflúin og því aukin hætta á smiti.
Taflan sem hér birtist sýnir samanburð á milli ára.
200407/ÖP Yfirlit grásleppuvertíða til og með 6. apríl Upphafsdagur 2020 10. mars, 2019 20. mars 2020 2019 breyting frá fyrra ári Umsóknir um leyfi 90 bátar 143 bátar -37% Fjöldi báta með leyfi 89 bátar 140 bátar -36% Fjöldi báta á veiðum 67 bátar 108 bátar -38% Afli 677 tonn 729 tonn -7% Afli pr. bát 10.106 kg 6.753 kg 50% Fjöldi daga 1.243 1.220 2% Afli pr. dag 545 kg 598 kg -9% Fjöldi landana 473 595 -21% Afli pr. löndun 1.432 Kg 1.226 Kg 17% Fjöldi með afla > 30 tonn 1 bátur 0 bátar 20 að 30 tonnum 6 bátar 2 bátar 200% 10 að 20 tonnum 20 bátar 23 bátar -13% Frá upphafi vertíðar 28 dagar 18 dagar 56% Selt á fiskmörkuðum 199 tonn 136 tonn 46% Verð pr kg af grásleppu 222 kr/kg 287 kr/kg -23% Þorskur sem meðafli 234 tonn Þorskur seldur á mörkuðum 147 tonn 192 tonn -23% Verð pr kg af grásleppuþorski 215 kr/kg 241 kr/kg -11%