
Einn af bestu vinum grásleppunnar, Eyþór Ólafsson, átti leið framhjá Faxamarkaði í dag.
Eitthvað togaði í hann sem sagði honum að líta inn. Eins gott því þar blasti við honum hrognafull grásleppa.
Sannarlega óvænt sjón á þessum tíma árs.













