Í Morgunblaðinu mánudaginn 11. maí birtist grein eftir Axel Helgason fv. formann LS
Í greininni vitnar Axel til skrifa Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem birtust í Morgunblaðinu 9. maí (sjá grein.pdf). Þar leggur ráðherra áherslu á hversu ábyrg fiskveiðistjórnun, sem byggð er á vísindum, sé mikilvæg fyrir íslenskan sjávarútveg.
Axel tekur boltann á lofti og vekur athygli á að þegar kemur í ljós að forsenda vísindaráðgjafar reynist röng verði ráðherra að grípa inn í.