Grásleppuvertíðin hófst á hefðbundnum tíma þann 20. mars. Það sem af er vertíð er afli nánast sá sami og á sama tíma í fyrra. Á yfirstandandi vertíð hafa nokkru fleiri dagar verið nýttir og þrátt fyrir að bátum hafi einnig fjölgað þá dugir það ekki til aukins afla.
Mestum afla hefur verið landað á Bakkafirði 182 tonnum, á Drangsnesi hefur 174 tonnum verið landað og á Hólmavík 168 tonnum. Alls hefur grásleppuafla verið landað á 33 stöðum.
Aflahæsti báturinn er kominn yfir fjörutíu tonn. Hlökk ST með 41,5 tonnum, Hólmi ÞH hefur landað 39 tonnum og Sundhani ST er kominn með 38,3 tonn. Alls eru 7 bátar komnir með yfir 30 tonn. Á sama tíma í fyrra höfðu 9 bátar náð 30 tonnum og aflahæstur þá var kominn um 45,9 tonn.
Meðalverð á grásleppa sem seld er á markaði er nú 290 kr/kg en var í fyrra 205 krónur. Það kemur því á óvart að bátum á grásleppu hefur aðeins fjölgað um 10 milli ára, en alls hafa 159 bátar hafið veiðar.