Grásleppukavíar – um 70% fara til Frakklands


Á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs var heildarverðmæti
grásleppuhrogna og kavíars komið yfir 3,5 milljarð sem er 53% aukning frá sama
tímabili á árinu 2009.   Verðmæti
kavíarsins var 1,5 milljarður og saltaðra grásleppuhrogna 2 milljarðar.  Báðar afurðirnar hafa hækkað um tugi prósenta
í evrum talið milli ára.

Alls var kavíar seldur til 13 landa og grásleppuhrogn
11.   Frakkar keyptu mest allra af
grásleppukavíar en Danir voru stórtækastir í söltuðum grásleppuhrognum.   Magnskiptingu milli landa má sjá á myndunum sem
hér fylgja.

Picture 9.png

Unnið upp úr tölum frá Hagstofu Íslands