Réttur mánuður er nú liðinn frá því grásleppuvertíðin hófst. Á helstu veiðisvæðum á N og NA-landi hafa veiðar gengið illa. Veiðitölur frá því að vera innan við þriðjung af því sem veiddist í fyrra upp í helming. Það er því ekki aðeins að verðið sé lélegt heldur bregst veiðin einnig. Sannarlega erfitt ár fyrir grásleppukarla á þessu svæði.
Strandir eru undantekning hvað slaka veiði áhrærir. Bátar sem róa frá Hólmavík og Drangsnesi hafa margir fiskað ágætlega, eins og sést á veiðitölum þaðan.
LS hefur tekið saman aflatölur sem byggðar eru á bráðabirgðatölum frá Fiskistofu. Heildarveiðin svarar til 2.435 tunna af hrognum, en sama tímabil fyrir ári skilaði 4.980 tunnum.
Taflan sem hér fylgir sýnir þá staði þar sem veiðin hefur náð 100 tunnum. Aflatölur umreiknaðar til tunna af 105 kg af söltuðum grásleppuhrognum.
- Hólmavík 405 tunnur (347)
- Siglufjörður 306 tunnur (400)
- Drangsnes 234 tunnur (273)
- Sauðárkrókur 135 tunnur (329)
- Vopnafjörður 130 tunnur (283)
- Húsavík 116 tunnur (404)
- Ólafsfjörður 116 tunnur (267)
- Skagaströnd 110 tunnur (141)