Grásleppuvertíðin 2013 hófst 20. mars. Það voru bátar á Eyjafjarðarsvæðinu sem fyrstir voru að leggja. Að sögn þeirra sem búnir eru að draga voru þeir sáttir með aflann í fyrstu umvitjun.
Flestir grásleppuveiðimenn bíða nú eftir endanlegri ákvörðun um fjölda daga á vertíðinni. Í samtali við sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun hefur verið unnið úr gögnum sem komu úr togararallinu. Því má gera ráð fyrir að ákvörðun ráðherra liggi fyrir á næstu dögum.
RÚV fjallaði sl. föstudag um upphaf grásleppuvertíðinnar og þá óvissu sem sjómenn búa nú við.