Guðlaugur kosinn formaður

Nefnd LS um frjálsar handfæraveiðar hélt sinn fyrsta fund í dag.  Í upphafi fundar skiptu nefndarmenn með sér verkum.   Guðlaugur Gunnarsson gegnir formennsku og Konný Breiðfjörð Leifsdóttir sér um fundarritun.

Á fundinum ræddi nefndin tilhögun strandveiða 2012 og útbjó í því skyni vinnuplagg sem unnið verður útfrá.   Þegar þeirri vinnu lýkur mun nefndin senda stjórn LS það til kynningar og afgreiðslu.