LS hefur tekið saman aflatölur í þorski, ýsu og steinbít fyrstu níu mánuði ársins og borið saman við tímabilið í fyrra. Aflinn er minni í öllum tegundunum. Mestur er samdrátturinn í ýsu 27,7%, 10,7% í steinbít og 2,5% í þorski. Samanlagður afli í tegundunum þrem minnkar um 9,6% á milli ára.
Hlutdeild hvers útgerðarflokks í heildarafla hverrar tegundar breytist lítið milli ára, nema hjá krókaaflamarksbátum þar sem hún fer úr 19% upp í 21%.
Sjá tölur.pdf
Fyrir sama tímabil var einnig skoðað hver er hlutur hvers veiðafæris. Þar er áhugavert að sjá hversu hlutfall línuveiddrar ýsu hefur aukist milli ára. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs er þriðjungur allrar ýsu veiddur á línu en var 29% í fyrra.
Sjá veiðafæri.pdf