Hæstiréttur – heimilt að banna dragnótaveiðar

Sverrir Sveinsson formaður Skalla ritaði grein í Morgunblaðið 1. febrúar sl.  Yfirskrift greinarinnar var „Hæstaréttardómur um dragnótaveiðar.  Í greininni fjallar Sverrir m.a. um nýfallinn dóm Hæstaréttar sem staðfesti að Jóni Bjarnasyni fv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi verið heimilt að banna dragnótaveiðar á grunnslóð, nánar tiltekið á Skagafirði.