Hafrannsóknastofnun – vandinn liggur í fiskveiðistjórnunarkerfinu

Í gær funduðu forsvarsmenn Landssambands smábátaeigenda með forstjóra og sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar.  Fundarefnið var títtnefnd „ýsuvandræði sem felast í að krókaaflamarksbátar eiga í miklum erfiðleikum með að veiða þann þorsk sem þeim hefur verið úthlutað.
Á fundinum ítrekaði LS kröfur sínar þar sem hæst ber að veiðiheimildir í ýsu verði tafarlaust auknar um 5.000 tonn.  Fundur LS með sjávarútvegsráðherra nú fyrir skömmu vísaði til þess að megin forsenda þess að úr því yrði væri breyting á ráðgjöf stofnunarinnar. 
LS sótti málið fast á fundinum, en þrátt fyrir eindregnar óskir um að Hafrannsóknastofnun mundi endurskoða ráðgjöf fyrir yfirstandandi fiskveiðiár á grundvelli góðrar niðurstaðna í haustralli hafnaði stofnunin því alfarið.  Forystumenn stofnunarinnar sögðu vandann felast í fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Það er mat LS að framhald málsins sé alfarið í höndum sjávarútvegsráðherra.  Vandinn er gríðarlegur þar sem krókaaflamarksbátar eru hver af öðrum að stöðvast þar sem engan kvóta er að fá og ef eitthvað hrekkur til er það verðlagt langt út fyrir öll velsæmismörk.  
Tillögur LS um ýsu.jpg