Halldór Ármannsson formaður Siglingaráðs

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað Halldór Ármannsson fv. formann Landssambands smábátaeigenda til að gegna formennsku í siglingaráði.   
Hlutverk siglingaráðs er að vera ráðherra til ráðuneytis um siglinga-, hafna- og öryggismál sjófarenda.
Halldór Ármannsson (1).png
Helstu verkefni sem siglingaráð kemur að er
að móta tillögu að öryggisáætlun  
        sjófarenda með Samgöngustofu
að vinna að langtímaáætlun í 
        öryggismálum sjófarenda, ásamt því 
        að hafa eftirlit með framgangi hennar 
        og stuðla að samstarfi þeirra aðila sem 
        að henni koma
að veita umsagnir um lagafrumvörp og 
        drög að reglugerðum er varða 
        siglinga- og hafnamál, ásamt EES-
        gerðum og innleiðingu þeirra
að veita umsögn um tillögu 
        samgönguráðs að samgönguáætlun hvað varðar málefni siglinga og hafna
að stofna vinnuhópa um afmörkuð verkefni sem ráðið ákveður að ráðast í eða 
        ráðherra felur því að vinna
að fjalla um önnur mál á sviði siglinga og hafna að ósk ráðherra eða einstakra 
        ráðsmanna.
Halldór tekur við formennsku af Ásbirni Óttarssyni fv. alþingismanni.
Fulltrúi LS í ráðinu er Axel Helgason formaður.
LS óskar Halldóri til hamingju með formennskuna, jafnframt sem fráfarandi formanni er þakkað fyrir sín störf.