Á fundi stjórnar LS sem haldinn var í kjölfar aðalfundar tilkynnti Pétur Sigurðsson formaður Kletts að hann gæfi ekki lengur kost á sér sem varaformaður LS.
Pétur Sigurðsson
Nýr varaformaður Landssambands smábátaeigenda var kosinn með lófaklappi á fundinum: Halldór Ármannsson formaður Reykjaness.
Halldór Ármannsson
Samtímis sem Pétri er þakkað farsælt starf í þau fimm ár sem hann hefur gegnt starfinu er Halldóri óskað allra heilla sem nýr varaformaður LS.