Handfæraveiðar tóku kipp með tilkomu strandveiða

Árið 2009 var upphafsár strandveiða hér við land.  Strandveiðar hleyptu nýju blóði inn í sjávaútveginn, gæddu hafnirnar lífi og efldu hinar dreifðu byggðir landsins.
Veiði á handfæri hefur fjórfaldast frá árinu 2008.  Heildarveiði á nýliðnu ári fór í annað skiptið á tímabilinu yfir 25 þúsund tonn.  Mest var veitt af þorski 14.677 tonn og makríl 8.527 tonn. 
Þrátt fyrir þessa aukningu á handfæraafla er hann aðeins 2,3% af heildarafla íslenskra skipa.  
2,2 milljónir tonna 1997
Heildarafli íslenskra skipa á öllum miðum nam alls 1.070 þúsund tonnum, en fara þarf aftur til ársins 2010 til að finna minni afla en þá veidduðst 1.068 þúsund tonn.
Heildarveiði á árinu 2016 var 13,2% minni en meðaltal sl. tíu ára.  
Árið 1997 er aflahæsta árið í sögu íslenskra skipa en þá veiddu þau um 2,2 milljónir tonna.
Aflinn aftur til ársins 1945
Graf.jpg






Unnið upp úr tölum frá Hagstofunni