Smábátar settu enn eitt aflametið með veiðum sínum á síðasta fiskveiðiári. Heildarafli þeirra endaði í 88.260 tonnum. Aldrei í sögu smábátaútgerðarinnar hefur aflinn verið meiri.
Þorskur var 60% aflans eða 53.066 tonn. Af ýsu veiddu þeir 12.321 tonn, steinbít 3.620 tonn og ufsa 2.571 tonn. Þessar fjórar tegundir báru því uppi 81% heildaraflans.
Skipting aflans milli einstakra veiðikerfa var eftirfarandi:
- Krókaaflamarksbátar 72.145 tonn
- Strandveiðibátar 8.701 tonn
- Aflamarksbátar 7.375 tonn
Hlutdeild smábáta í heildarafla þorsks, ýsu og steinbíts á síðasta fiskveiðiári jókst frá því 2012 / 2013. Þannig veiddu smábátar nú 24% alls þorsks, 34% ýsunnar og 52% af öllum steinbít sem hér var veiddur.
Alls lönduðu 1.118 smábátar afla á fiskveiðiárinu 2013 / 2014.
Skipting milli veiðikerfa og sérveiðileyfa var eftirfarandi:
Krókaaflamarkskerfi 630 bátar
Aflamarksbátar 145
- Strandveiðar 649 bátar
- Grásleppuveiðar 223
- Makrílveiðar 121
- Síld 34
Unnið upp úr gögnum frá Fiskistofu