Helmingi minni afli

Alls hafa 165 bátar hafið grásleppuveiðar á móti 249 á sama tíma í fyrra.  Ágæt veiði hefur verið fyrir norðan og austan en með tregara móti í Faxaflóa og Breiðafirði.  
Það sem af er vertíð er búið að landa grásleppu sem jafngildir 2.190 tunnum af hrognum.  Borið saman við síðustu vertíð er það aðeins helmingur þess sem þá var.