Hluti byggðakvóta fari til strandveiða og línuívilnunar

 
Umsagnarfresti í Samráðsgátt um skýrsluna Sjálfbær sjávarútvegur lauk í gær.  Í umsögn LS var komið inn á fjölmarga þætti varðandi efni skýrslunnar ásamt því að benda á atriði sem félagið vill sjá í fyrirhugðu frumvarpi um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.
 
 
 
Byggðakvótar 
 
      • byggðakvótar verði sameinaðir og heimildir nýttar með löndunarívilnun á sama hátt og gildir um ívilnun á afla dagróðrabáta á línu. 
 
      • bátar sem rétt eiga til heimildanna skulu vera minni en 30 brt með mestu lengd að 15 metrum og skráðir í viðkomandi byggðarlagi. 
      • aflinn boðinn upp á fiskmarkaði.
 
      • fiskvinnslur á sama atvinnusvæði og landað er geta gengið inn í hæsta tilboð. 
 
      • bátar sem engar heimildir hafa en hafa fengið byggðakvóta undanfarin ár verði úthlutað a.m.k. fimm óframseljanlegum þorskígildistonnum.  
 
Áður en heimildum til byggðakvóta er útdeilt til byggðarlaga skulu eftirtaldar veiðiheimildir dregnar frá og ráðstafað á eftirfarandi hátt:
      • 3 500 tonn af þorski gangi til strandveiða og línuívilnunar
      • 650 tonn af ýsu fari í línuívilnun. 
      • 1 000 tonn af ufsa verði nýttur sem ívilnun á aflamark við handfæraveiðar.
 
Strandveiðar

LS hvetur matvælaráðherra að leggja strax til auknar heimildir til strandveiða eða skilja strandveiðar frá aflamarkskerfinu enda er 4 x 12 daga fyrirkomulagið að grunni til sóknarmark sem er ósamrýmanlegt almenna kvótakerfinu.
 
Línuívilnun

LS mótmælir harðlega öllum hugmyndum að fella niður línuívilnun
„Svo virðist sem hópurinn hafi látið hjá líðast að kynna sér mikilvægi línuívilnunar.  Með stækkun krókaflamarksbáta árið 2013 hófst mikil samþjöppun í veiðikerfinu og til urðu bátar að stærstu gerð með yfir þúsund tonna veiðiheimildir, dæmi um að aflinn á fiskveiðiárinu hafi farið yfir tvö þúsund tonn.  Við ákveðinn tonnafjölda er brot í afkomunni þannig að það er hagkvæmara að vera með beitningavél og sleppa línuívilnun.  Það er helsta ástæða þess að færri njóta nú línuívilnunar og heimildir til hennar hafa dregist saman.
 
Skel- og rækjubætur 
 
    • Rækju- og skelbætur í þorski sem skipt hafa um eigendur gangi til strandveiða og línuívilnunar.  Aðrar tegundir bótanna leggist við ívilnunar heimildir byggðakvóta.
 
 
 
230929 logo_LS á vef.jpg