Hrollaugsmenn vilja stærri krókaaflamarksbáta

Aðalfundur Hrollaugs – félags smábátaeigenda á Höfn – var haldinn 27. september.  Fundurinn var afarvel sóttur sem marka má að 75% félagsmanna greiddu atkvæði um kjarasamning LS og sjómannasamtakanna.
IMG_6954.jpg
Í tillögum fundarins til aðalfundar LS, sem fram fer 18. og 19. október nk. voru aðaláherslu lagðar á eftirfarandi:
  • Lokuð hólf undir því yfirskyni að friða keilu verði tafarlaust opnuð
  • Hámarksstærð krókaaflamarksbáta verði 29.99 brt og ekki lengri en 14,99 m.
  • Makrílpottur til krókaveiða verði 20 þús. tonn
  • Línuívilnun nái til allra dagróðrabáta
  • Afli strandveiðibáta verði háðurIMG_6960.jpg sóknartakmörkunum og dagsveiði hvers báts
Formaður Hrollaugs er 
Arnar Þór Ragnarsson