Aðalfundur Hrollaugs var haldinn 27. september sl. Fundurinn var ágætlega sóttur og fjöldi spurninga sem vaknaði hjá Hornfirðingum. Í umræðunni var m.a. komið inn á strandveiðar, línuívilnun, byggðakvóta, makrílveiðar og þrengingar á línuveiðar vegna reglugerðarlokana.

Eftirfarandi vill Hrollaugur að rætt verði á aðalfundi LS:
- Að línuívilun nái til allra dagróðrabáta og að LS beiti sér að krafti til að ná því fram.
- Makrílveiðar. Haldið verði fast í þann pott sem ætlaður er til makrílveiða minni báta.
- Geymsluréttur verði 20% í stað 15%.
- Aðalfundur Hrollaugs mótmælir öllum reglugerðarhólfum fyrir línuveiðum út af Suðausturlandi.
Greinargerð: Reglugerðarhólfin eru út af smákeilu. Leggjum við til að stærðarmörk á Keilu verði lækkuð, þannig að hægt sé að stunda línuveiðar frá Hornafirði með góðu móti.
Í lok fundar var kosið í stjórn Hrollaugs, hún er skipuð eftirtöldum:
Arnar Þór Ragnarsson formaður
Unnsteinn Þráinsson gjaldkeri
Ívar Smári Reynisson ritari













