Hrygningarstopp 2016 eftir páska

Athygli er vakin á árlegu hrygningarstoppi.  Það hefst 1. apríl, en þá lokast svæði með Suðurströndinni mjótt belti vestur um og norður að Skorarvita.  Veiðisvæði lokast svo eitt af öðru.  Formlega lýkur stoppinu 15. maí þegar opnað verður fyrir veiðar í Húnafirði. 
 
Tilgangur þessarar veiðistöðvunar er að gefa þorskinum góðan frið við hrygninguna, en með því telja vísindamenn Hafrannsóknastofnunar að auknar líkur séu á enn stærri þorskstofni.
Screen Shot 2016-01-19 at 15.27.55.png
Hrygningarstoppið nú er 25. í samfelldri röð þess, en því var fyrst komið á árið 1992.  Á upphafsárum þess var tímabilið breytilegt og féll inn í páska.  Nokkuð er um liðið frá því ákveðið var að breyta því og hin síðari ár hafa verið fastar dagsetningar.  Því ber svo við nú að ekki nægir að stoppa veiðar um páska, því til viðbótar hefst hrygningarstopp 2016 föstudaginn 1. apríl – viku eftir föstudaginn langa.