Athygli er vakin á árlegu hrygningarstoppi. Það hefst 1. apríl, á páskadag, en þá lokast svæði með Suðurströndinni mjótt belti vestur um og norður að Skorarvita. Veiðisvæði lokast svo eitt af öðru. Formlega lýkur stoppinu 15. maí þegar opnað verður fyrir veiðar í Húnafirði.
Tilgangur þessarar veiðistöðvunar er að gefa þorskinum góðan frið við hrygninguna, en með því telja vísindamenn Hafrannsóknastofnunar að auknar líkur séu á enn stærri þorskstofni.
Stærð þrskstofnsins 2017 mældist 1.356 þúsund tonn. Vöxturinn var 9% milli ára.
Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar frá 2017 spáir stofnunin því að veiðistofn vaxi áfram og mælist 1.444 þúsund tonn í ár.
Niðurstaða marsralls – stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum sem nýlega er lokið segir svo til um endanlega stærð stofnsins. Helstu niðurstöður verða kynntar í apríl.
Hrygningarstoppið nú er það 27. í samfelldri röð þess, en því var fyrst komið á árið 1992.