Landssamband smábátaeigenda bíður nú svara frá fiskmörkuðunum hvort fallist verður á beiðni félagsins um að seljendur fái upplýst hver kaupi af þeim aflann.
Á fundi sem LS átti með forsvarsmönnum fiskmarkaða deildu aðilar með sér áhyggjum af lækkandi fiskverði. Einkum er það þorskurinn sem var ræddur og það smánarverð sem hann hefur verið seldur á það sem af er júlí. Fundurinn var hreinskiptinn enda fara hagsmunir beggja aðila saman. Báðir þurfa á hvor öðrum að halda.
Fréttir af verðlækkun hefur vakið upp margar spurningar þar sem hún er langt umfram það sem nemur styrkingu krónunnar. Fiskkaupendur hafa eftir að málið kom í umfjöllun bent á að auk þess hafi laun og tilkostnaður í landi hækkað og tveggja mánaða verkfall sjómanna hafi skaðað ímynd Íslendinga um afhendingaröryggi. Auk þessa séu færri að vinna fisk nú í sumar en verið hefur þar sem erfitt sé að fá fólk í sumarafleysingar.
Vitneskja liggur fyrir um að smábátaeigendur séu að þreifa fyrir sér með sölu aflans beint á erlendan markað. Í þeirri vinnu eru flutningsleiðir, kostnaður og verð á mörkuðum undir.
Á fyrstu 5 mánuðum ársins nam útflutningur fersks þorsks alls 8.065 tonnum en á sama tíma í fyrra höfðu verið flutt út 9.950 tonn, samdrátturinn nemur því 19%. Þar munar mestu um verkfallsmánuðunum janúar og febrúar þegar helmingsminnkun var milli ára. Staðan breyttist síðan í mars, apríl og maí sem allir skiluðum meira magni til útflutnings en í fyrra.
Frekari upplýsingar um útflutning sem unnar eru upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands verða birtar á næstu dögum.