Hundruð prósenta verðmunur á makríl milli Íslands og Noregs

Verðlagsstofa skiptaverðs 
Screenshot 2019-08-27 at 23.33.06.png
hefur sent frá sér skýrslu 
Screenshot 2019-08-27 at 23.32.45.png
Í skýrslunni koma fram upplýsingar um meðalverð á makríl sem er landað til frekari vinnslu til manneldis í landi eða bræðslu og afurðaverð á helstu afurðaflokkum makríls.  Verðsamanburðurinn nær til 7 ára, 2012 – 2018.
Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að á árinu 2018 er meðalverð á öllum makríl 294% hærra í Noregi en á Íslandi.  Sundurliðað er meðalverð á makríll til vinnslu 226% hærra í Noregi og til bræðslu er verðmunurinn 43%.
Í skýrslunni er einnig borið saman afurðaverð.  Á árinu 2018 er útflutningsverð á makrílflökum 62% hærri frá Noregi en héðan og 17% verðmunur er á heilfrystum makríl og hausskornum.