Hvað eru smábátasjómenn að hugsa?

„Sjálfbærar fiskveiðar byggja á því að jafnvægi sé á milli félagslegra, hagrænna og umhverfislegra markmiða.
Stjórnmálahagfræðingurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Elinor Ostrom hélt því fram að eiginlegar áherslur fiskveiðastjórnunarkerfa væru á fólk en ekki fisk.
l_image59c3b88d1fe80.jpgÁ morgun 22. september mun dr. Catherine Chambers, fagstjóri meistaranáms í Haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða flytja erindi um rannsóknir sínar meðal íslenskra smábátasjómanna, m.a. viðhorf þeirra til og reynsla af fiskveiðastjórnun.
Erindið verður í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði og hefst kl 12:10 og stendur til kl 13:00.
Smábátaeigendur eru hvattir til að fjölmenna og drekka í sig þann fróðleik sem Catherine hefur fram að færa.
logo_pos_h100.jpg